Melar Sport í samstarfi við Opna Háskólann bjóða upp á eftirfarandi námskeið á næstunni:
Afreksmaðurinn II - Hugarfar og íþróttasálfræði
Melar Sport bjóða upp á glænýtt námskeið um hugarfar íþróttafólks fyrir 19 ára og yngri. Námskeiðið er sjálfstætt framhald af námskeiðinu AFREKSMAÐURINN sem notið hefur mikilla vinsælda.
Námskeiðið verður haldið sunnudaginn 29. maí kl. 13-18 í félagsheimili Vals að Hlíðarenda.
Fræðslunámskeið fyrir foreldra
Fræðslunámskeið fyrir foreldra ungra og metnaðarfullra íþróttamanna.
Námskeiðið verður haldið vorið 2011.
Nánari upplýsingar væntanlegar.
Hugarfar og næring afreksfólks
Fræðslunámskeið ætlað ungu og metnaðarfullu íþróttafólki og foreldrum.
Í boði fyrir íþróttfélög og sveitarfélög á landsbyggðinni.
Frá og með 1. október 2010.