Magnús Agnar Magnússon

Magnús Agnar Magnús Agnar Magnússon, KSÍ umboðsmaður

Magnús Agnar er fæddur 5. mars árið 1974 í Reykjavík. Hann lék knattspyrnu og handknattleik með KR upp yngri flokkana og var 16 ára gamall þegar hann spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik með KR í handknattleik en á sínum ferli spilaði Magnús Agnar m.a. með KR, Stjörnunni, KA, Gróttu/KR og Team Helsinge (DK). Hann spilaði m.a. yfir 500 leiki með meistaraflokki og einnig með öllum yngri landsliðum Íslands. Með A landsliðinu lék hann 4 landsleiki.

Magnús Agnar vann lengi sem yfirmaður hjá Símanum áður en hann og hans fjölskylda fluttu til Danmerkur. Þar var hann m.a. atvinnumaður í handknattleik, stundaði nám og önnur störf.

Magnús Agnar tók umboðsmannapróf KSÍ í september 2006 og hóf þá störf sem slíkur. Hann hefur verið búsettur síðan 2004 í Kaupmannahöfn en er nú um stundir með fast aðsetur í Reykjavík. Hann á konu og unga dóttur.