04 May 2011
Melar Sport bjóða upp á nýtt námskeið fyrir metnaðarfullt íþróttafólk 19 ára og yngri. Námskeiðið er sjálfstætt framhald af fræðslunámskeiðinu Afreksmaðurinn, og fjallar sérstaklega um hugarfar og íþróttasálfræði.
NÁMSKEIÐSLÝSING:
Námskeiðinu er ætlað að kynna þátttakendum fyrir og þjálfa í árangursríku hugarfari. Farið verður yfir hvað einkennir hugarfar afreksfólks á ýmsum sviðum og hvers konar hugarfar er líklegt til árangurs. Námskeiðið byggist upp á fræðslu og verklegum æfingum sem lúta að því að bæta og styrkja hugarfar hvers og eins til árangurs á ólíkum sviðum. Meðal annars verður fjallað um huglæga nálgun og undirbúning, sjálfstraust, áhugahvöt einstaklinga, markmiðssetningu og fleira. Þátttakendur rýna í sjálfa sig og koma til með að leysa verkefni sem nýtast þeim í íþróttum, námi sem og í daglegum samskiptum.
LEIÐBEINENDUR:
Viðar Halldórsson, íþróttafélagsfræðingur og Erlendur Egilsson, sálfræðingur.
KENNSLUFYRIRKOMULAG:
Námskeiðið byggist á fyrirlestrum og vinnu nemenda og verður haldið í félagsheimili Vals að Hlíðarenda, sunnudaginn 29. maí 2011, kl. 13:00-18:00. Verð aðeins kr.: 8.000.- Innifalið í verði eru námskeiðsgögn og léttar veitingar.
Skráningar sendist á vidar@melarsport.is
Allar nánari upplýsingar veitir Viðar Halldórsson (s. 825 6388 / vidar@melarsport.is)
06 Apr 2011
Það er búið að vera mikið að gera hjá ráðgjafarhluta Mela Sport á síðustu vikum. Mikil eftirspurn hefur verið frá fyrirtækjum og stofnunum um fyrirlestra og ráðgjöf til starfsfólks. Við höfum meðal annars komið inn í fyrirtæki með fræðslu um árangur og ánægju í starfi og leik sem og hvatningafyrirlestra svipað og gert er í íþróttliðum. Auk þess höfum við verið að vinna hjá sjö íþróttaliðum sem og ungmennafélagssamtökum og PGA golfskólanum.
Allar nánari upplýsingar um ráðgjafarhlutann veitir Viðar Halldórsson : vidar@melarsport.is / s. 825 6388
18 Feb 2011
Hér má finna fróðlegt viðtal við Finn Orra Margeirsson, knattspyrnumann í Breiðablik. Viðtalið birtist í þáttunum Á VELLINUM sem sýndir voru á Stöð 2 Sport haustið 2010.
Viðtalið má sjá hér:
Búningsklefinn
23 Jan 2011
Einn efnilegasti leikmaður landsins, Jón Daði Böðvarsson, hefur verið lánaður í 3 mánuði til danska liðsins AGF frá Árósum. Jón Daði er fæddur 1992 og var einn af lykilmönnum Selfoss í Pepsi deildinni á síðasta tímabili, spilaði 21 einn leik og skoraði 3 mörk. Hann er einnig fastamaður í U19 ára landsliðinu og hefur spilað 9 leiki með þeim og skorað 1 mark.
22 Jan 2011
Um helgina stóðu Melar Sport og Opni háskólinn fyrir fræðslunámskeiðinu AFREKSMAÐURINN. Námskeiðið var í þetta sinn haldið sérstaklega fyrir fimleikadeild Stjörnunnar. Ríflega 60 fimleikastelpur mættu á námskeiðið, sem haldið var í félagsheimili Stjörnunnar í Garðabæ, og fræddust um hugarfar afreksfólks og næringarfræði. Við þökkum Stjörnustelpum kærlega fyrir skemmtilegan dag!
18 Jan 2011
Hjörtur Logi Valgarðsson er genginn til liðs við sænska stórliðið IFK Göteborg. Logi, sem kemur úr herbúðum FH, gerði 4 ára samning við sænska liðið.
Við óskum Loga góðs gengis á nýjum slóðum.
Sjá nánar frétt um félagaskiptin á heimasíðu IFK Göteborg:
IFK Göteborg home page
10 Jan 2011
Viðar Halldórsson verður með erindi á fræðsluráðstefnu í kringum Reykjavik International Games. Fleiri fyrirlestrar eru í boði og fara þeir fram miðvikudaginn 12. janúar í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Nánar um erindið:
„Enginn maður skapar sig sjálfur” – Félagslegt umhverfi íþrótta og árangurs
Árangur í íþróttum byggist ekki eingöngu á líkamlegum og hugarfarslegum eiginleikum einstaklinga heldur spilar hið félagslega umhverfi sitt hlutverk í að skapa afreksfólk á ýmsum sviðum. Í erindinu verður varpað fram hugleiðingum um tengsl hins félagslega umhverfis við árangur í íþróttum.
Sjá nánar á heimasíðu RIG
Reykjavik International Games
29 Dec 2010
Fræðslunámskeiðið AFREKSMAÐURINN fór fram í gær, 28. desember, fyrir fullu húsi af flottum íþróttakrökkum í Háskólanum í Reykjavík. Um 100 þátttakendur voru á námskeiðinu og fræddust þeir um hugarfar, mataræði og styrktarþjálfun auk þess að fá innsýn í líf þeirra afreksmanna sem komu í heimsókn.
Við viljum þakka öllum þeim þátttakendum sem komu á námskeiðið, sem meðal annars voru hópar frá HSÍ og DSÍ, fyrirlesurum og afreksfólkinu, auk velvildarmanna hjá Ölgerðinni og Mjólkursamsölunni sem og þeim aðilum sem hjálpuðu okkur að koma auglýsingunni um námskeiðið á framfæri.
Kærar þakkir!
24 Dec 2010
Melar Sport óska leikmönnum sínum, viðskiptavinum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla.
Hafið það sem allra best yfir hátíðarnar en við hittum ykkur svo vonandi sem fyrst …því íþróttir verða stundaðar áfram.
Gleðilega hátíð!
Magnús Agnar og Viðar
22 Dec 2010
Sunnudaginn 19. desember var Afreksskóli Fjölnis stofnaður. Skólastjóri er Ásmundur Arnarsson en Melar Sport komu að uppbyggingu skólans og munu vinna með nemendum og þjálfurum að þáttum sem lúta að hugarfari og árangri.
21 Dec 2010
Námskeiðið verður haldið þriðjudaginn 28. desember næstkomandi og fer það fram í Háskólanum í Reykjavík í Nauthólsvík.
Gengið er inn í hringlaga byggingu í miðju hússins – Sólina – en þar í móttökunni er hægt að fá nánari upplýsingar um staðsetningu námskeiðsins. Kennsla fer svo fram á 2. hæð í rými Opna Háskólans.
Námskeiðið stendur frá kl. 09.30-16.30. Húsið opnar kl. 09.00. Vinsamlegast mætið tímanlega.
Þátttakendur fá öll námskeiðsgögn og boðið verður upp á súpu og brauð i hádeginu.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Viðar og Magnús Agnar
07 Dec 2010
Fræðslunámskeiðið AFREKSMAÐURINN verður haldið þriðjudaginn 28. desember. Námskeiðinu er ætlað að kynna heim afreksíþróttamannsins og þær leiðir sem liggja að frekari árangri þátttakenda í íþróttum. Námskeiðið byggist upp á fjölbreyttum fyrirlestrum og kennslu um hugarfar, mataræði og styrktarþjálfun; sjálfsskoðun og markmiðssetningu einstaklinga; en einnig gefst þátttakendum kostur á að spyrja afreksíþróttamenn spjörunum úr.
Þeir afreksmenn sem búnir eru að staðfesta komu sína eru: Gylfi Þór Sigurðsson kattspyrnumaður hjá Hoffenheim, Hreiðar Levý Guðmundsson landsliðsmarkvörður í handbolta, Ragnheiður Ragnarsdóttir sundkona úr KR, Alfreð Finnbogason knattspyrnumaður í Lokeren – og fleiri gætu bæst við á næstu dögum.
Á annað hundrað ungra og ánægðra íþróttamanna hafa sótt námskeiðið á þessu ári. Við útbúum svo glæsileg gjafabréf sem eru tilvalin í jólapakkann.
Kennslufyrirkomulag:
Námskeiðið verður haldið þriðjudaginn 28. desember kl. 09.30-16.30.
Verð kr.: 8.000, – Innifalið í verði eru námskeiðsgögn og léttar veitingar.
Skráning og frekari upplýsingar:
Skráningar sendist á vidar@melarsport.is og nánari upplýsingar má nálgast í síma 825 6388. Í skráningu er mikilvægt að muna að tilkynna ef um gjafabréf er að ræða.
Um leiðbeinendur:
Viðar Halldórsson – íþróttafélagsfræðingur
Viðar hefur á undanförnum árum unnið að rannsóknum á íþróttum barna og ungmenna, afreksíþróttum og afreksíþróttafólki. Hann hefur kennt íþróttafélagsfræði og íþróttasálfræði við Kennaraháskóla Íslands og Háskólann í Reykjavik, komið að stefnumótun íþróttafélaga, unnið með mörgum af bestu íþróttamönnum og keppnisliðum landsins auk þess sem hann hefur flutt fjölda fyrirlestra á ráðstefnum sem og fyrir íþróttahópa, fyrirtæki og stofnanir hér á landi og erlendis.
Ólafur Sæmundsson – næringarfræðingur
Ólafur hefur unnið á líkamsræktarstöðvum við næringarráðgjöf, fyrirlestra- og námskeiðahald. Hann hefur séð um næringarráðgjöf fyrir Skólamat ehf sem er fyrirtæki sem sérhæfir sig í að útbúa mat fyrir börn á grunnskólaaldri. Hann hefur kennt næringarfræði við Háskólann í Reykjavík og staðið fyrir fjölda fyrirlestra fyrir íþróttahópa, félagasamtök og fyrirtæki. Ólafur er höfundur bókarinnar Lífsþróttur – næringarfræði fróðleiksfúsra sem er nokkurs konar grundvallarrit í næringarfræði og kennd m.a. í mörgum framhaldsskólum.
Arnar Hafsteinsson – styrktarþjálfari
Arnar er menntaður íþróttafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík en leggur nú stund á meistaranám. Hann er margreyndur styrktarþjálfari og hefur bæði unnið í kringum almenna heilsueflingu fólks sem og með afreksíþróttafólki.
21 Nov 2010
Í gær skrifaði leikmaður Pepsi deildarinnar 2010, Alfreð Finnbogason, undir 3 1/2 árs samning við Sporting Lokeren í Belgíu. Þetta var ekki eina afrekið hans á skömmum tíma því hann opnaði markareikning sinn með landsliðinu þegar hann skoraði fyrra mark Íslands gegn Ísrael í vináttulandsleik sem háður var á miðvikudaginn var.
Við óskum Alfreð til hamingju með samninginn og hlökkum til að fylgjast með Alfreð feta í fótsport Rúnars Kristinssonar, Arnars Grétarssonar og Arnars Viðarssonar.
14 Nov 2010
Íslenska landsliðið í knattspyrnu mætir Ísrael í Ísrael á næstkomandi miðvikudag en í hópnum eru einir 4 leikmenn Mela Sport:
Leikurinn fer fram á Bloomfield vellinum og hefst leikurinn kl:17:35 (ísl.tíma).
Áfram Ísland!
28 Oct 2010
Samkvæmt nýrri könnun eru yfir 80% unglinga í Reykjavík ánægðir með íþróttafélagið sitt. Þeir eru ánægðir með félagið sitt, þjálfarana sína, æfingaaðstöðuna og æfingarnar.
Melar Sport unnu að verkefninu í samstarfi við ÍBR og Rannsóknir & greiningu.
Sjá nánar frétt á heimasíðu ÍBR
Og hér má finna helstu niðurstöður könnunar
11 Oct 2010
Námskeiðið AFREKSMAÐURINN verður haldið í þriðja sinn sunnudaginn 24. október.
Skráningar hafnar á www.opnihaskolinn.is.
Kynningarmyndband
Sjá nánar hér til hliðar.
11 Oct 2010
Íslenska U21 landsliðið hefur tryggt sér þátttökurétt í lokakeppni EM í knattspyrnu næsta sumar eftir sigur á Skotlandi 2-1 í tveimur leikjum. Þetta er sögulegur sigur þar sem íslenskt karlalandslið hefur aldrei áður komist á lokakeppni í stórmóti.
Við hjá Melum Sport erum stoltir af því að vera með sjö leikmenn liðsins á skrá hjá okkur. Þetta eru þeir:
Arnar Darri Pétursson (markvörður)
Hjörtur Logi Valgarðsson (varnarmaður)
Elfar Freyr Helgason (varnarmaður)
Skúli Jón Friðgeirsson (varnarmaður)
Jón Guðni Fjóluson (varnarmaður)
Almarr Ormarsson (miðjumaður)
Alfreð Finnbogason (sóknarmaður)
Til hamingju strákar!
10 Oct 2010
Eftirtaldir leikmenn Mela Sport eru nú í spennandi landsliðsverkefnum.
Í A-landsliði karla fyrir leikinn gegn Portúgal í ungankeppni EM eru:
Indriði Sigurðsson, Theodór Elmar Bjarnason Guðjón Baldvinsson og Arnór Sveinn Aðalsteinsson.
Í U21 liðinu í leikjunum mikilvægu við Skota um sæti í lokakeppni EM eru:
Arnar Darri Pétursson, Skúli Jón Friðgeirsson, Hjörtur Logi Valgarðsson, Jón Guðni Fjóluson, Elfar Freyr Helgason, Almarr Ormarsson og Alfreð Finnbogason.
25 Sep 2010
Melar Sport hafa umsjón með sjónvarpsþættinum Á VELLINUM sem er nýr íþróttaþáttur fyrir ungt fólk. Þátturinn verður sýndur á Stöð 2 Sport í vetur og fer fyrsti þáttur í loftið laugardaginn 25. september kl. 12.30. Þátturinn verður sýndur á laugardögum og endursýndur á þriðjudögum en einnig er hægt að nálgast hann á VOD kerfi Símans og Vodafone.
Á VELLINUM á Facebook
23 Sep 2010
Við erum búnir að láta inn á síðuna nokkrar greinar sem hafa birst hér og þar í gegnum tíðina. Greinarnar má finna undir flipanum “Greinar” efst á síðunni. Fleiri greinar eru væntanlegar á næstu dögum.
23 Sep 2010
Melar Sport bjóða nú upp á námskeið um hugarfar og næringu íþróttafólks. Námskeiðið er sérstaklega ætlað íþróttafélögum og sveitarfélögum á landsbyggðinni. Viðar Halldórson íþróttfélagsfræðingur og Ólafur Sæmundsson næringarfræðingur eru umsjónarmenn námskeiðsins. Sjá nánar auglýsingu námskeiðsins hér til hliðar.
04 Sep 2010
Baldur Sigurðsson hefur verið valinn í íslenska landsliðið en eru þá 3 leikmenn frá Melum Sport í hópnum og ekki ólíklegt að Arnór Sveinn verði í byrjunarliðinu gegn Dönum.
Hópurinn gegn Dönum.
04 Sep 2010
U21 árs landsliðið mætir Tékklandi næstkomandi þriðjudag í hreinu úrslitaleik um hvort liðið vinnur riðillinn. Í hópnum eru einir 7 leikmenn frá Melum Sport, þeir Jón Guðni Fjóluson, Alfreð Finnbogason, Almarr Ormarsson, Elfar Freyr Helgason, Skúli Jón Friðgeirsson, Arnar Darri Pétursson og Hjörtur Logi Valgarðsson. Hópurinn sem mætir Tékklandi.
02 Sep 2010
Garðar Jóhannsson hefur skrifað undir samning við Strømsgodset loka árs 2010 en Garðar fór frítt frá Stjörnunni. Godset hefur staðið sig einkar vel á tímabilinu og eru í 4 sæti í deildinni og komnir í undanúrslit bikarsins. Garðar mun spila í treyju nr. 21 hjá Godset.
Garðar búinn að klára sína fyrstu æfingu með Godset.
03 Aug 2010
Þeir Arnór Sveinn Aðalsteinsson (Breiðablik) og Indriði Sigurðsson (Viking Stavanger) eru í íslenska A-landsliðshópnum fyrir vináttuleikinn gegn Liechtenstein sem fram fer á Laugardalsvelli 11. ágúst næstkomandi.
Íslenski hópurinn
03 Aug 2010
Sex leikmenn Mela Sport hafa verið valdir í U21 landsliðshópinn fyrir leikinn mikilvæga gegn Þýskalandi sem fram fer á Kaplakrikavelli 11. ágúst næstkomandi. Þetta eru þeir: Arnar Darri Pétursson (Sönderjyske), Hjörtur Logi Valgarðsson (FH), Skúli Jón Friðgeirsson (KR), Jón Guðni Fjóluson (Fram), Almarr Ormarsson (Fram) og Alfreð Finnbogason (Breiðablik).
Íslenski hópurinn
02 Jul 2010
Markvörðurinn efnilegi Arnar Darri Pétursson hefur gengið til liðs við danska úrvalsdeildarliðið SønderjyskE. Arnar Darri gerði tveggja ára samning við félagið en hann kemur frá norska liðinu Lyn sem úrskurðað var gjaldþrota í vikunni.
Frétt fotbolta.net
24 Jun 2010
Hrint hefur verið af stað hvatningarátakinu Til fyrirmyndar til heiðurs frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni. Með átakinu eru landsmenn hvattir til að staldra við og huga að því sem vel er gert, jafnt stóru sem smáu.
Melar Sport styðja átakið og má meðal annars finna viðtalsmyndbönd, sem Melar Sport framleiddu í samstarfi við Opna háskólann, á heimasíðu átaksins.
Til fyrirmyndar
18 Jun 2010
Það eru komnar tímasetningar á næstu námskeið.
Afreksmaðurinn – fyrir 17 ára og yngri – verður haldinn helgina 28 – 29. ágúst.
Taktu flugið – almennt námskeið – verður haldið 8. og 10 september.
Fylgist með nánari upplýsingum hér hægra megin á síðunni.
11 Jun 2010
Sturla Ásgeirsson, landsliðsmaður í handknattleik, hefur skrifað undir eins árs samning Val. Sturla kemur frá þýska liðinu Dusseldorf. Melar Sport óska Sturlu góðs gengis á nýjum vígstöðvum.
Frétt Mbl
06 Jun 2010
Nýtt helgarblað var að koma á íslenska fjölmiðlamarkaðinn. Í fyrsta tölublaðinu er meðal annars að finna smá hugleiðingu okkar, hjá Melum Sport, um vinsældir heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu. Hægt er að skoða blaðið hér: Krítík
02 Jun 2010
Síðastliðið haust vann Melar Sport leiðarvísi fyrir þjálfara og skipuleggjendur íþróttastarfs, í samstarfi við hverfaíþróttafélögin í Reykjavík og ÍBR. Hann er nú kominn á aðgengilegt form á heimasíðu íþróttabandalagsins sem má finna hér: Leiðarvísir um áherslur í íþróttastarfi barna og ungmenna
31 May 2010
Landslið Íslands í knattspyrnu vann öruggan sigur, 4-0, á Andorra á laugardag. Leikmenn Mela Sport þeir Indriði Sigurðsson, Jón Guðni Fjóluson, Skúli Jón Friðgeirsson og Arnór Sveinn Aðalsteinsson spiluðu leikinn í vörn liðsins og héldu markinu hreinu. Baldur Sigurðsson kom ekki við sögu í leiknum.
27 May 2010
Línumaðurinn Ingvar Árnason er genginn til liðs við norska liðið Viking Stavanger frá Val. Melar Sport óska Ingvari góðs gengis í Noregi.
Frétt Rogalands Avis
27 May 2010
Róbert Gunnarsson varð í dag Evrópumeistari bikarhafa annað árið í röð með liði sínu Gummersbach. Melar Sport óska Robba fyrirliða innilega til hamingju með frábæran árangur.
Frétt Mbl.
19 May 2010
Fjórir leikmenn Mela Sport eru í landsliðshópi Ólafs Jóhannessonar landsliðsþjálfara fyrir vináttuleik gegn Andorra sem fram fer á Laugardalsvelli 29. maí n.k. Þetta eru Arnór Sveinn Aðalsteinsson (Breiðablik), Indriði Sigurðsson (Viking FK), Jón Guðni Fjóluson (Fram) og Skúli Jón Friðgeirsson (KR).
13 May 2010
Handknattleiksmaðurinn Finnur Ingi Stefánsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Valsmenn. Melar Sport óska honum góðs gengið í nýju félagi.
valur.is
13 May 2010
Knattspyrnumaðurinn Jón Daði Böðvarsson hefur gert samning við umboðsskrifstofu Mela Sport. Jón Daði er fæddur árið 1992 og leikur sem miðju- og sóknarmaður með Selfossi í Pepsi deildinni. Við bjóðum Jón Daða valkominn í hópinn!
28 Apr 2010
Ráðgjafahluti Mela Sport þjónustar ekki aðeins íþróttasamfélagið heldur býður nú upp á fjölbreytta fyrirlestra og hópavinnu fyrir hvers kyns fyrirtæki og stofnanir. Ýmis konar hvatningafundir (motivation), liðsheildarvinna, og námskeið í boði. Hafið samband fyrir frekari upplýsingar.
vidar@melarsport.is
13 Apr 2010
Melar Sport og Opni Háskólinn kynna vinnustofu um listina að ná árangri.
Taktu flugið! (Experts and Expertise) verður haldin í byrjun maí í húsakynnum Háskólans í Reykjavík.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist innsýn í heim afburðafólks á ólíkum sviðum eins og íþróttum, listum og viðskiptum; geri sér grein fyrir áhrifum ólíkra þátta á árangur; og geti yfirfært þá þætti á eigin verkefni og eigið líf.
Umsjónarmenn eru Viðar Halldórsson, íþróttafélagsfræðingur hjá Melar Sport, og Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastóri Opna háskólans, auk gestakennara.
Sjá kynningarvideó um vinnustofuna
Nánari upplýsingar og skráning
31 Mar 2010
Námskeiðið Afreksmaðurinn sem fór fram nú í vikunni var vel heppnað. Fjöldi þátttakenda úr ýmsum íþróttum sátu fyrirlestra um árangur, hugarfar, næringarfræði og styrktarþjálfun auk þess að fá sýn í hugarheim Óskars Bjarna Óskarssonar handboltaþjálfara og tækifæri til að spyrja afreksfólk spjörunum úr. Góð stemning var hjá þátttakendum sem eiga hrós skilið fyrir góða einbeitingu á námskeiðinu og þá ákvörðun að nota fyrstu daga páskafrísins á námskeiði frekar en að vera í fríi. Upprennandi afreksfólk þar á ferð.
Melar Sport þakka fyrirlesurum og afreksfólki, Opna háskólanum, Serrano, Ölgerðinni, Mjólkursamsölunni og IK-veitingum fyrir mjög gott samstarf.
Námskeiðið Afreksmaðurinn verður haldið aftur í lok ágúst. Fylgist með fréttum af því og öðrum væntanlegaum námskeiðum á Facebooksíðu Mela Sport en þar má einnig finna myndir frá námskeiðum.
Melar Sport á Facebook
24 Mar 2010
Nú hafa nokkrir afreksíþróttamenn staðfest komu sína á námskeiðið Afreksmaðurinn sem fer fram á mánudag og þriðjudag (29-30. mars).
Þeir afreksmenn sem hafa staðfest komu sína eru:
Það verður fróðlegt að sjá hvað afreksfólkið hefur að segja.
Skráning á námskeiðið er enn í fullum gangi hér:
Skráning
11 Mar 2010
Melar Sport í samstarfi við Opna Háskólann bjóða nú aftur upp á námskeiðið Afreksmaðurinn.
Námskeiðið er fræðslunámskeið fyrir metnaðarfullt íþróttafólk 17 ára og yngri.
Fróðlegir fyrirlestrar, sjálfsskoðun og markmiðssetning einstaklinga ásamt heimsókn afreksfólks í íþróttum.
Námskeiðið er haldið í páskafríinu mánudaginn og þriðjudaginn 29-30 mars og því hentugt fyrir alla að komast.
Nánari upplýsingar og skráning
01 Mar 2010
Símun Samuelsen skipti nýverið um félag og fór aftur til síns heimalands og skrifaði undir 3 ára samning við HB Tórshavn (Havnar Bóltfelag). Símun hafði áður verið í ein 5 ár hjá Keflavík.
Við óskum Símun velgengni hjá HB en þar hittir hann þjálfarann sinn undanfarin ár hjá Keflavík, Kristján Guðmundsson.
23 Feb 2010
Viðar Halldórsson verður með opinn fyrirlestur fyrir foreldra barna í íþróttum miðvikudagskvöldið 24. febrúar kl.20.
Sjá nánar á heimasíðu KR.
16 Feb 2010
Melar Sport munu í samstarfi við Opna Háskólann halda námskeiðið Taktu flugið eða “Experts and Expertise” – Vinnustofa um listina að ná árangri.
Hagnýtt og skemmtilegt námskeið með þátttöku íslenskra afreksmanna af ólíkum sviðum.
Allar nánari upplýsingar eru að finna á heimasíðu Opna Háskólans.
28 Jan 2010
Viktor Bjarki skrifaði í dag undir 3ja ára samning við KR en áður hafði Viktor Bjarki hafnað tveimur tilboðum frá norskum liðum í Adecco deildinni. Hann kemur frá norska liðinu Lillestrom SK en þar hafði hann verið síðustu 3 árin.
Viktor lenti í erfiðum meiðslum strax fyrsta tímabilið sitt hjá LSK og náði ekki að spila neinn leik. Tímabilið 2008 var hann lánaður til KR til að komast í leikæfingu en þegar hann kom tilbaka var búið að ráða nýjan þjálfara og framtíðin óljós. Á síðasta tímabili var Viktor síðan lánaður til Nybergsund þar sem hann var lykilmaður.
Hjá KR er Viktor hugsaður sem arftaki Guðmundar Benediktssonar sem tengiliður milli miðju og sóknar.
24 Jan 2010
Gunnar Magnússon handknattleiksþjálfari hefur skrifað undir þriggja ára samning við Kristiansund HK í Noregi. Forráðamenn liðsins komu til Íslands snemma á þessu ári til að ná samningum við Gunnar og núna hefur það gengið eftir.
Kristiansund HK hafði samband við Melar Sport seint á árinu 2009 þar sem þeir voru að leita eftir þjálfara. Gunnar Magnússon passaði fullkomlega inní myndina hjá þessu metnaðarfulla félagi og spennandi tímar eru framundan hjá Gunnari og félaginu.
Nánari upplýsingar um þetta er að finna á heimasíðu Kristiansund HK.
22 Jan 2010
Garðar Jóhannsson gekk formlega í raðinn Hansa Rostock í dag eftir að hafa staðist læknisskoðun í gær.
Um leið og Garðar var kynntur sem nýr leikmaður Hansa var félagi hans úr landsliðinu, Helgi Valur Daníelsson einnig kynntur til leiks. Það má því með sanni segja að Hansa Rostock sé orðið Íslendingalið. Garðar gerði eins og hálfs árs samning eða til 30. júní 2011.
Fyrsti leikur Garðars verður væntanlega 30. janúar næstkomandi á heimavelli gegn Union Berlin.
Nánari upplýsingar er að finna á opinberu heimasíðu Hansa Rostock.
08 Jan 2010
Melar Sport er komið með síðu á Facebook. Endilega að skrá sig sem aðdáanda til að fá fréttir, tilkynningar um námskeið og aðrar upplýsingar.
04 Jan 2010
Fullt var út að dyrum á fyrsta námskeiði Mela Sport.
Námskeiðið Afreksmaðurinn sem haldið var í samstarfi við Opna háskólann dagana 2-3 janúar heppnaðist vel og voru þátttakendur um 50 talsins á aldrinum 14-18 ára.
Á námskeiðinu var farið yfir forsendur árangurs í íþróttum, mataræði og fæðubótarefni, grunnatriði styrktarþjálfunar, heim atvinnumanna, sýn þjálfara á iðkendur og svo mættu afreksmennirnir Indriði Sigurðsson, Ragna Ingólfsdóttir, Róbert Gunnarsson og Snorri Steinn Guðjónsson og svöruðu spurningum þátttakenda á námskeiðinu. Einnig fengu þátttakendur spurningalista sem snéri að sjálfsskoðun og farið var í markmiðssetningu.
Námskeiðið heppnaðist vel og viljum við hjá Melum Sport og Opna háskólanum þakka öllum sem að komu; fyrirlesurum, afreksfólkinu, Serrano, Ölgerðinni og KB veitingum, og sérstaklega viljum við þakka þátttakendum fyrir ánægjulega helgi.
Við vonum að þátttakendur komi vel stemmdir í nýja árið og að það eigi eftir að vera árangursríkt í íþróttunum sem og á öðrum vígstöðvum.
02 Jan 2010
Námskeiðið Afreksmaðurinn verður haldið í Háskólanum í Reykjavík helgina 2-3 janúar. Námskeiðið er ætlað ungu og metnaðarfullu íþróttafólki á aldrinum 14-18 ára. Skráningar á námskeiðið hafa gengið vel en það eru enn nokkur sæti laus.
01 Jan 2010
Heimasíða Mela Sport fór í loftið 1. janúar 2010. Á henni má finna helstu upplýsingar um fyrirtækið og starfsemi þess. Auk þess verður þar að finna upplýsingar um leikmenn á skrá, námskeið og fleira sem á döfinni verður hjá fyrirtækinu.
29 Dec 2009
Í lok árs var haldið hóf þar sem þeir leikmenn sem eru á skrá hjá umboðsskrifstofu Mela Sport hittust og áttu saman góða kvöldstund ásamt mökum. Hófið var haldið í golfskálanum Seltjarnarnesi þar sem fyrirtækið var m.a. kynnt og leikmenn ræddu saman.
16 Dec 2009
Melar Sport hafa gert samstarfssamning um fjölbreytt námskeiðahald við Opna háskólann í Háskólanum í Reykjavík. Samningurinn lýtur að sameiginlegu námskeiðahaldi fyrir íþróttafólk, þjálfara sem og vinnustaði og stjórnendur.
Sjá nánar um Opna háskólann:
Opni háskólinn
Sjá frétt á vef Opna háskólans um samstarfið:
Samstarf OH og MS
Fyrsta námskeiðið er fyrir 14-18 ára íþróttamenn og fer fram helgina 2-3 janúar 2010.